Frábær dagur í dag, fengum loksins framkvæmdaleyfi.
Ég verð að segja að þetta ferli hefur tekið mun lengri tíma en ég hélt í upphafi. Þjónusta hjá Reykjavík hefur verið til mikillar fyrirmyndar fyrir utan eitt sorglegt símtal sem mér finnst nú að starfsmaður borgarinnar hafi bætt upp með því að standa við stóru orðin.
Sem sagt mjög merkur áfangi í verkefninu en strax í framhaldinu fór Ásdís og pantaði útsetningu sem mér sýnist borgin ætla að framkvæma hratt og vel.
Pabbi fékk afhenda byggingarstjóramöppuna sem er ákaflega vel gerð af borginni. Það er ekkert skrýtið að maður vilji búa í Reykjavík þó ég verði þó að lasta öllum þessu gjöldum sem koma út um allt. Borgin mætti veita meiri upplýsingar til þeirra sem hyggjast byggja um öll þau gjald sem koma til við alla þessa skriffinnsku.
Ef við fáum útsendingu á morgum mun pabbi sennilega merkja húsið út um helgina og tengdó mun koma fljótlega eftir helgi og taka fyrstu skóflustunguna.
Langt ferli í teikningum að baki en gríðarlega jákvætt hversu góða aðila við fengum í verkin. Jón Ben Einarsson stóð sig frábærlega, ákaflega gaman að vinna með honum í þessu ferli. Fráæbært að hafa arkitekt sem leggur sig fram með að vinna með hugmyndir fólks en á sama tíma segir sína skoðun og beitir sér fyrir réttu hlutunum.
Hefði síðan ekki viljað vera án Júlla bróður í þessu ferli en hann hjálpaði okkur gríðarlega við teikningar og hugmyndavinnu. Gaman að sjá hversu ótrúlega öflugur hann er orðinn á þessu sviði.