Snjókoma í morgun vakti ekki lukku en sem betur fer var ekki mikill snjór í dalnum. Hægt var að halda áfram með verkið.
Tengdó kláraði því grunninn í dag og var framkvæmd plötuprófun. Frábær vinna sem á eftir að auðvelda eftirleikinn.
Ég á eftir að fá niðurstöður úr prófuninni en ljóst er að hægt væri að reysa Effelturninn vestan megin en suðauðstan megin var ekki jafn góð þjappa enda annað efni þar undir.
Á morgun fæ ég svo niðurstöður hvort þetta sé ekki nóg og ættum við þá að geta byrjað á sökklum eftir helgi.
Vinnuskúrinn var fluttur uppeftir af Dóra nágranna þannig að vinnusvæðið er að taka á sig góða mynd. Tengjum rafmagn o.fl. á næstu dögum.