Byrjuðum snemma í morgun að rífa frá sökklum. Mikil vinna að naglhreinsa og skafa timbur. Frábært að hafa borið vel á þetta.
Benóný stóð sig frábærlega í dag, vann rösklega og hafði gaman af. Aldrei er hægt annað en að dást að konunni en hún tekur sko á því og veður í allt.
Frábær dagur bæði hjá okkur og stelpunum sem nutu dagsins með Maríu ömmu í Breiðholtinu.